Ræða Önnu Stefánsdóttur á fræðslumóti Rótarý

Fræðslumót verðandi embættismanna Rótarý á Íslandi haldið 23.mars 2019 í Menntaskólanum í Kópavogi

Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin á fræðslumótið sem er fyrir viðtakandi embættismenn Rótarýumdæmisins á Íslandi.  Það er gaman að sjá ykkur öll, og ég hlakka til að vinna með ykkur á starfsárinu sem hefst 1. júlí n.k.   Við söknum nokkurra félaga sem ekki komust, þar sem ekki var fært frá Norðurlandi í gær.

Við skulum byrja á að  kynna okkur – ég heiti Anna Stefánsdóttir, ég er félagi í Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi og  er viðtakandi umdæmisstjóri,  þá byrjum hér í fremstu röð og ….

——————————————

 „Tryggt umhverfi – traust samfélag“  er þemað sem ég hef ákveðið að nota fyrir mitt starfsár.

Umhverfis- og loftslagsmál eru í brennidepli nú um stundir. Mikil umræða hefur verið innan ríkisstjórnarinnar og á Alþingi um málaflokkinn.  Á síðastliðnu hausti kynnti ríkisstjórnin viðamikla aðgerðaráætlun í loftslagsmálum. Áætlað er að verja umtalsverðum fjárhæðum til sérstakra aðgerða í málaflokknum á næstu fimm árum.

Loftslagssjóður var settur á laggirnar til að styrkja nýsköpun og rannsóknir í loftslagsmálum og loftslagsráð var stofnað, en því er ætlað að vera stjórnvöldum til aðhalds með markvissri ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir sem tengjast loftslagsmálum á Íslandi.

Umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpaði  umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna í Kenía í þessari viku. Í ávarpinu lagði hann áherslu á að mikilvægt væri að uppræta plastmengun og matarsóun.  Hann sagði m.a.  að ósjálfbær neysla okkar hefði farið úr böndunum, með skaðlegum áhrifum á umhverfið og loftslagið og svo væri stórum hluta neysluvara pakkað í plastumbúðir, með tilheyrandi skaðlegum umhverfisáhrifum.

RÚV sýnir vikulega mjög áhugaverða og lærdómsríka  þætti um umhverfis- og loftslagsmál. Þar sjáum við svart á hvíta hver staðan er og hvert stefnir ef við tökum ekki til hendinni og breytum umgengni okkar við umhverfið.

Rótarýhreyfingin sem er meðal  stærstu og áhrifamestu mannúðarsamtaka heims, einbeitir sér nú í auknum mæli að umhverfis- og loftslagsmálum og þeim áhrifum sem  breytingar á loftslagi hafa á samfélög.

Í nýjasta blaðinu The Rotarian er viðtal við Barry Rassin, alþjóðaforseta.  Hann segir m.a. að Rótarýhreyfingin verði að láta til sín taka í umhverfis- og loftslagsmálum eigi hún að vera trúverðug í sínum mikilvægu mannúðarverkefnum á 21. öldinni. Hvirfilbyljir og flóð ógni lífsviðurværi fólks í mörgun löndum og það er verkefni Rótarý að bregðast við. „ Við verðum að átta okkur á því að umhverfismál  falla vel að megináherslum Rótarý, ”  segir alþjóðaforseti, enda eru sterk tengsl  milli mannúðar og sjálfbærni.  Með þátttöku í verkefnum sem stuðla að umbótum í umhverfismálum stuðlum við að bættum heimi.

Á vegum íslenska umdæmisins starfar umhverfisnefnd og  undanfarin tvö ár hefur umdæmisstjóri hvatt klúbba til að planta trjám til kolefnisbindingar.  Ég hvet klúbba til að halda því verkefni áfram. Nokkrir klúbbar hafa reyndar ræktað trjálundi í mörg ár og er það vel. Ég ætla í samvinnu við umhverfisnefnd  að leggja til fleiri verkefni sem tengjast umhverfismálum og mun ræða það í heimsóknum mínum til klúbbanna síðar á þessu ári.

Rótarýklúbbar á Íslandi hafa í áranna rás hlúð að nærsamfélaginu með margvíslegum hætti. Með átaki  í umhverfismálum hlúum við enn frekar að okkar nærsamfélagi og látum á sama tíma rödd Rótarý heyrast.

Rótarýdagurinn sem haldinn verður 23. febrúar 2020 býður upp á tækifæri til að gera umhverfismálunum góð skil og um leið kynna allt það góða sem Rótarý leggur af mörkum fyrir samfélagið   Við erum ekki nógu dugleg að láta rödd Rótarý heyrast, segja frá verkefnum okkar og tala um fyrir hvað við stöndum.

Útrýming lömunarveikinnar er eitt mikilvægasta verkefni Rótarýhreyfingarinnar. Ár hvert eru 400 milljón börn bólusett við lömunarveiki. Lokatakmarkinu er ekki náð því ennþá greinast börn í tveim löndum með veikina.

Rótarýdagurinn í ár var helgaður þessu verkefni og lagði umdæmið mikið í að kynna það m.a með gerð myndbands sem finna má á heimasíðu Rótarý.  Ég hvet ykkur til að leggja þessu verkefni lið með framlagi til Polio Plus sjóðsins. Við fáum að heyra um útrýmingu lömunarveikinnar seinna í dag.

Rótarýhreyfingin á undir högg að sækja ekki síst í hinum vestræna heimi. Félögum fækkar, meðalaldurinn hækkar, klúbbar eru sameinaðir eða lagðir niður og umdæmi eru sameinuð. Mikilvægt er að snúa þessari þróun við eigi hreyfingin að viðhalda  sér og verkefnum sínum á næstu áratugum.

Við á Íslandi höfum staðið okkur nokkuð vel undanfarið en okkur helst ekki vel á ungu fólki og konum og við megum ekki sofna á verðinum. Við viljum alls ekki missa sjálfstæði okkar umdæmis. Breytinga er þörf og nýjar leiðir í félagaþróun eru nauðsynlegar. Á undanförnum árum hefur frelsi klúbbanna til að laga sig að breyttum þjóðfélagsháttum aukist til muna með breytingum á lögum Rotary InternationaI.  Það býður upp á aukinn sveigjanleika sem við eigum að grípa til varðandi klúbbstarfið.

Það er á ábyrgð okkar sem leiðtoga í Rótarý að hvetja til og leiða breytingar í takt við nýja tíma. Við eigum að vera leitandi og lausnamiðuð, bjóða ungu og hugmyndaríku fólki til liðs við okkur, bjóða leiðtogum úr okkar samfélagi til liðs við klúbbinn.  Bjóða fólk velkomið sem getur ekki komið á hvern fund en getur ef til vill tekið þátt í verkefni á vegum klúbbsins eða lagt klúbbnum lið á einhvern hátt.  Gera breytingar á klúbbstarfinu í takt við nýja tíma. Erum við kannski of föst í hefðunum sem gera klúbbinn ekki aðlaðandi fyrir ungt fólk.? Svari nú hver fyrir sig.  Við heyrum meira um þetta verkefni frá formanni félagaþróunarnefndar síðar í dag.

Kjörorð Mark Maloney verðandi alþjóðaforseta næsta starfsárs er „Rotary connects the world“.  Ég hef leyft mér að íslenska þetta kjörorð, líkt og forverar mínir hafa gert á hverjum tíma, og segi „Rótarý tengir heiminn“. Mark Maloney leggur áherslu á að uppbygging Rótarý bjóði upp á að mynda tengsl.

Klúbbarnir eru grunneining Rótarý þar sem félagar sameinast um gildi hreyfingarinnar og mynda sterk tengsl sín á milli.   Rótarýfélagar mynda líka tengsl í sínu samfélagi  þar sem við erum virkir þátttakendur og látum verkin tala, svo og á alþjóðavettvangi þar sem Rótarý vinnur margvísleg verkefni. “Þjónustan tengir okkur við fólk sem deilir gildum okkar,” segir Maloney.  Öflug tengsl efla og styrkja hreyfinguna, breiða út boðskap hennar og auka sýnileika.

Fljótlega eftir að ég flutti í Kópavog fyrir 22 árum gekk ég til liðs við Rótarý, ekki síst til að kynnast fólki hér og mynda tengsl við samfélagið. Ég hef sannarlega náð því markmiði mínu.  Er fólk að flytja í bæinn ykkar eða hverfið? Bjóðið þeim að ganga til liðs við Rótarý.

Góðir félagar, Rótarýumdæmið á Íslandi hefur allt frá árinu 2005 veitt ungu og efnilegu tónlistarfólki á klassíska sviðinu veglega styrki til áframhaldandi náms. Þegar farið er yfir lista styrkþega má sjá að margir hafa náð langt í sinni list og eru virkir í tónlistarlífinu hér á landi eða erlendis. Það hefur líka sýnt sig að það auðveldar styrkþegum að komast áfram að hafa það á sínu CVi að vera styrkþegi Rótarý.

Fyrsti styrkþeginn var Víkingur Heiðar Ólafsson sem við öll þekkjum.  Mikill metnaður er lagður í allan undirbúning að Stórtónleikum Rótarý sem haldnir eru í upphafi árs og þar koma styrkþegarnir fram. Undanfarin ár hafa verið veittir tveir styrkir. Styrkirnir eru að hluta til fjármagnaðir með tónleikunum. Við getum verið mjög stolt af þessu verkfeni. Tónleikarnir eiga að vera stórviðburður í tónlistarlífinu og mikil kynning fyrir okkar góða starf, en því miður hefur aðsóknin ekki verið sem skyldi. Ég hvet ykkur til að fylgjast með og taka ykkur saman í klúbbnum ykkar og fjölmenna á tónleikana næsta ár. Þeir eru líka tilvalinn viðburður fyrir fjölskylduna.

Stór og mikilvægur þáttur í starfi Rótarýhreyfingarinnar er ungmennaþjónustan. Íslenskum ungmennum gefst kostur á að taka þátt  í nemendaskiptum, um lengri eða skemmri tíma.

Þau kynnast Rótarý, menningu annarra landa og eflast sem einstaklingar.  Á móti koma hingað skiptinemar frá öðrum löndum sem auðga lífið í klúbbunum með nærveru sinni. Síðar í dag fáum við í heimsókn tvo skiptinema ásamt forystufólki ungmennaþjónustunefndarinnar. Þau munu segja okkur frá þessu frábæra starfi.

Rótarýhreyfingin er boðberi friðar í heiminum og veitir m.a. styrki til framhaldsnáms í friðarfræðum.  Tíu íslenskar konur eru styrkþegar og hafa lokið þessu námi. Margar þeirra eru í störfum sem tengjast friðarfræðum s.s. sem sendifulltrúar Rauða kross Íslands á átakasvæðum, við störf í þjónustu við flóttamenn, við störf í utanríkisþjónustunni og víðar. Ég hvet ykkar til að kynna námið og sérstaklega hvet ég þau ykkar sem starfa í háskólasamfélaginu að koma náminu á framfæri innan ykkar skóla og vekja athygli nemenda og starfsmanna á þeim góðu námsstyrkjum sem því fylgja.

Í dag fáum við fræðslu um notkun nýju heimasíðunnar, sem búið er að endurvekja eftir alvarlega tölvuárás sem fyrirtækið varð fyrir í byrjun þessa árs. Þó er ekki búið að endurvekja alla hluti kerfisins en vonandi tekst að gera við þá á næstu vikum.  Nefndarmenn okkar í vefþjónustu þeir Guðni, Ólafur og Agnar hafa lagt nótt við dag undanfarið við að koma kerfinu í gagnið. Allt er þetta unnið í sjálfboðnu starfi og færi ég þeim  bestu þakkir fyrir þrotlausa vinnu.  Ég hvet ykkur til að fara strax að nota kerfið og skrá í samræmi við þær heimildir sem þið fáið. Það sparar þeim félögum mikla vinnu ef skráningin er góð.

Á heimasíðu Rotary International má finna mikið af upplýsingum, ráðleggingum, efni til að vinna með, tölfræði og skýrslur RI um ykkar klúbb og síðast en ekki síst er þar að finna Rotary Central þar sem hægt er að setja markmið fyrir klúbbinn og sjá þróun síðustu ára. Hægt er að nálgast þetta efni með því að  stofna reikning á rotary.org, My rotary kallast reikningurinn. Það er mjög auðvelt og ég hvet ykkur til að gera það sem fyrst.

Á heimasíðunni er einnig að finna svokallaða Presidential Citation. Það eru markmið sem alþjóðaforsetinn leggur áherslu á að klúbbar uppfylli og veitir viðurkenningar fyrir þau sem nást og eru skráð.

Í bláu pokunum eru gögn frá RI varðandi hlutverk ykkar á komandi starfsári, gögn sem eiga að auðvelda ykkur að skipuleggja klúbbstarfið ásamt því að sinna  ykkar hlutverki sem leiðtogar Rótarý á Íslandi á komandi starfsári. Öll þessi gögn eru líka á heimasíðu RI.

Ég setti heimsóknaráætlun mína til klúbbana í bláa pokann. Ég bið ykkur að skoða hvort upplýsingarnar þar eru réttar og ef þið hafið einhverjar ábendingar að koma þeim til mín sem fyrst í tölvupósti.  Ég hef síðan samband við hvern og einn forseta þegar líður að heimsókn minni til að undirbúa hana.

Í dag fáið þið að kynnast aðstoðarumdæmisstjórunum fjórum, þeirra hlutverki og verkaskiptingu. Hlutverk þeirra breytist á næsta starfsári og ég hvet ykkur til að leita til þeirra eftir aðstoð eða ráðleggingum  t.d. vegna stefnumótunar og við gerð starfsáætlunar fyrir klúbbinn.

Góðir félagar. Ég óska  ykkur til hamingju með að hafa verið kjörin til forystu fyrir Rótarý á Íslandi fyrir næsta starfsár. Það er í ykkar höndum að gera starfsemina í klúbbunum áhugaverða og skemmtilega, að hvetja félaga til að vera virkir í starfinu.

Ég sem umdæmisstjóri er  ykkur til aðstoðar ásamt mínum aðstoðarumdæmisstjórum og nefndarfólki umdæmisins.

Ég vona að þið njótið dagsins og segi fræðslumótið sett.

 

BARÁTTA FYRIR FRIÐI

ÚTRÝMING SJÚKDÓMA

TRYGGJA HREINT VATN OG HREINLÆTI

UNGBARNA- OG MÆÐRAHJÁLP

TRYGGJA BÖRNUM SKÓLAGÖNGU